Lögregla í Bandaríkjunum telur sig vera búna að finna lík Mollie Tibbetts, tvítugrar bandarískrar stúlku sem saknað hafði verið frá því hún hvarf 18. júlí sl. að því er BBC greinir frá.
Síðast spurðist til Tibbets þegar nágrannar sáu hana úti að hlaupa seint það kvöld í nágrenni heimilis hennar í Brooklyn. Vinir Tibbets segja hana vera mikinn hlaupara og skoðaði lögregla m.a. gögn úr Fitbit-æfingaúri hennar við leit sína.
BBC segir yfirvöld nú bíða þess að réttarmeinafræðingur ljúki skoðun sinni, en líkið fannst snemma í morgun. Ekki hefur verið greint frá því hver möguleg dánarorsök Tibbets er talin vera.
Tibbet var að passa hund á heimili kærasta síns og bróður hans er hún hvarf og greindi bandaríska alríkislögreglan FBI frá því í síðustu viku að leitin beindist nú einkum að fimm stöðum í Brooklyn: bílaþvottastöð, tveimur bóndabæjum, stoppistöð fyrir flutningabíla og heimili kærasta Tibbets, en áður hafði verið greint frá því að kærastinn og bróðir hans lægju ekki undir grun.
FBI ræddi einnig í tvígang við svínabónda vegna hvarfs Tibbets og veitti hann lögreglu heimild til að leita aftur á landareign sinni, auk þess sem þeir leituðu á heimil hans og skoðuðu farsímagögn hans.
FBI lofaði þá 260 þúsund Bandaríkjadölum fyrir upplýsingar sem hjálpi til við að upplýsa málið.