Páfi neitar að tjá sig um bréfið

Frans páfi ræddi stuttlega við fjölmiðla áður en hann hélt …
Frans páfi ræddi stuttlega við fjölmiðla áður en hann hélt heim á leið til Rómar eftir tveggja daga heimsókn til Írlands. AFP

Frans páfi neitar að tjá sig um efni bréfsins sem erkibiskupinn Carlo Maria Vig­anò birti í dag þar sem fullyrt er að páfinn hafi vitað af ásök­un­um um kyn­ferðis­brot fyrr­ver­andi erki­bisk­ups­ins og kardí­nál­ans Theodore McCarrick í mörg ár áður en greint var frá þeim op­in­ber­lega. McCarrick sagði af sér fyrir um mánuði.

„Ég segi ekki orð um þetta,“ sagði páfi við fjölmiðla í kvöld, rétt áður en hann steig upp í flugvél og hélt heim á leið til Rómar eftir tveggja daga opinbera heimsókn til Írlands.

Erki­bisk­up­inn Vig­anò full­yrðir í bréfi sínu að hóp­ur valda­mik­illa manna í Vatíkan­inu hafi tekið þátt í að hylma yfir ásak­an­ir um kyn­ferðis­lega mis­notk­un af hálfu McCarrick.

Hann var sakaður um að hafa beitt tán­ing kyn­ferðis­legu of­beldi er hann starfaði sem prest­ur í New York snemma á átt­unda ára­tugn­um. McCarrick var einn af æðstu emb­ætt­is­mönn­um kaþólsku kirkj­unn­ar í Banda­ríkj­un­um áður en Frans páfi samþykkti upp­sögn hans.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert