Talsmaður Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta segir að morðið á Alexander Zakharchenko, leiðtoga aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu, í gær sé ögrun sem muni grafa undan friði.
„Það leikur enginn vafi á því að þetta er ögrun,“ sagði Dmitry Peskov, talsmaður Pútíns, í samtali við rússneska fjölmiðla.
„Dauði Zakharchenko mun leiða til þess að aukin spenna verður á svæðinu,“ sagði Peskov og bætti við að með þessu væri verið að grafa undan Minsk-friðarsamkomulaginu.