Boris Johnson, fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands, segir að tillaga Theresu May, forsætisráðherra landsins, varðandi útgöngu Breta úr Evrópusambandinu þýði að Bretar fái sama og ekkert eftir samningaviðræðurnar og að ESB muni standa með pálmann í höndunum.
Johnson segir í pistli í blaðinu Daily Telegraph að tillaga May, sem varð til þess að hann sagði af sér embætti í júlí, þýði „stórslys“ fyrir Breta, að sögn BBC.
Stutt er síðan Michel Barnier, aðalsamningamaður ESB, kvaðst vera mjög á móti ákveðnum hlutum í tillögunni.
Bresk stjórnvöld segja áætlun sína „nákvæma og hagnýta“.