Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hvatt Jeff Sessions dómsmálaráðherra til að rannsaka hver skrifaði nafnlausa grein þar sem lýst var slæmu ástandi innan ríkisstjórnar Bandaríkjanna.
„Mér finnst að Jeff eigi að rannsaka hver sé höfundur þessarar greinar vegna þess að ég tel að það varði þjóðaröryggi,“ sagði Trump við blaðamenn um borð í forsetavélinni.
Í grein óþekkts embættismanns innan ríkisstjórnarinnar sem birtist í The New York Times er Trump harðlega gagnrýndur og því haldið fram að embættismenn ríkisstjórnar hans vinni að því að grafa undan honum vegna ótta við það hversu „óútreiknanlegur“ og „siðlaus“ hann sé.
„The Times hefði aldrei átt að gera þetta vegna þess að í rauninni, það sem þeir hafa eiginlega gert er, vitið þið, að fremja landráð,“ sagði Trump í viðtali við Fox News fyrrr í dag.
NEW: Donald Trump says Attorney General Jeff Sessions should investigate who the New York Times op-ed writer is https://t.co/cdMrAmEgu9 pic.twitter.com/pHighmkgdf
— Newsweek (@Newsweek) September 7, 2018