Hefðu tekið tístið sem yfirvofandi árás

Rannsóknarblaðamaðurinn Bob Woodward og Donald Trump Bandaríkjaforseti. Woodward segir bandarískan …
Rannsóknarblaðamaðurinn Bob Woodward og Donald Trump Bandaríkjaforseti. Woodward segir bandarískan almenning þurfa að vakna og átta sig á hvað er að gerast á forsetaskrifstofunni. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti olli yfirmönnum í Pentagon, bandaríska varnarmálaráðuneytinu, verulegum ótta með Twitter-skilaboðum sem hann sendi næstum því. Skilaboðin hefðu, að því er fram kemur í væntanlegri bók rannsóknarblaðamannsins Bob Woodward, verið túlkuð af ráðamönnum í Norður-Kóreu sem merki um yfirvofandi árás.

Í bók Woodward, sem nefnist Fear og kemur í bókaverslanir á morgun, eru hátt­sett­ir emb­ætt­is­menn sagðir leggja á ráðin sín á milli til að koma í veg fyr­ir að for­set­inn fram­kvæmi ein­hverja vit­leysu og Trump er sagður vera með of­sókn­aræði á svo háu stigi vegna Rúss­ar­ann­sókn­ar­inn­ar sem nú stend­ur yfir að hann eigi erfitt með að sinna starfi sínu.

Í viðtali við CBS-sjónvarpsstöðina lýsti Woodard atviki sem hann segir eitt það hættulegasta í kjarnorkudeilunni við Norður Kóreu.

„Hann gerði drög að Twitter skilaboðum þar sem stóð: „Við ætlum að kalla til baka frá Suður-Kóreu, alla fjölskyldumeðlimi þeirra 28.000 sem þar eru,“ sagði Woodward og vísaði þar til bandaríska varnarliðsins og fjölskyldna þeirra á Kóreuskaga.

Twitter-færslan var hins vegar aldrei birt vegna athugasemda sem bárust eftir bakleiðum um að Norður-Kóreumenn myndu skila skilaboðin á þann veg að Bandaríkin væru að undirbúa árás.

„Á þeim tíma vaknaði verulegur ótti innan Pentagon um að: „Guð minn góður, ein Twitter-skilaboð, sem  við höfum traustar upplýsingar um að Norður-Kóreumenn muni túlka sem yfirvofandi árás,““ sagði Woodward.

Verulega hefur dregið úr spennu milli ríkjanna eftir leiðtogafund þeirra Trumps og Kims Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, í Singapore í júní. Þannig lét Kim nýlega í ljós „staðfesta trú“ sína á Trump og forsetinn lofaði í gær hersýningu Norður-Kóreu fyrir að þar voru engin kjarnorkuvopn.

„Almenningur þarf að fara að vakna og átta sig á hvað er að gerast á forsetaskrifstofunni,“ sagði Woodward.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert