Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa handtekið mann eftir að hann birti myndskeið af sér og samstarfskonu sinni þar sem þau sjást borða morgunmat. Í yfirlýsingu segir að maðurinn hafi verið handtekinn vegna þess að myndskeiðið hafi verið móðgandi. Auk þess hafi hann brotið reglur um kyn.
Fréttastöðin SaudiNews50 greindi frá því að konan hefði einnig verið handtekin. Ekki hefur verið greint frá þjóðerni fólksins en maðurinn talar egypsku í myndskeiðinu.
انتو متخيلين إن جريمتهم فطور 😂 #مصري_يفطر_مع_سعوديه pic.twitter.com/l4WYKPIFfX
— Meem🦋🌸 (@Meem_reflection) September 9, 2018
Myndskeiðið var tekið í anddyri hótels þar sem fólkið vann. „Komið og borðið morgunmat með okkur,“ heyrist maðurinn, Bahaa, segja.
Íhaldssöm yfirvöld Sádi-Arabíu voru ekki ánægð með myndskeiðið, sem fór eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla. Þar í landi eru almannarými yfirleitt kynjaskipt en á flestum veitingastöðum eru sérstök svæði þar sem karlmenn geta borðað.