Ósýnilegi Bítillinn

Sir Paul McCartney slóst í hópinn þegar þúsundir manna mótmæltu …
Sir Paul McCartney slóst í hópinn þegar þúsundir manna mótmæltu skotvopnaofbeldi á Manhattan fyrr á þessu ári. AFP

Nei, það er víst ekkert vandamál; enginn tekur eftir honum. „Fari ég í lestina stara allir aðrir á símann sinn. Ég lít hins vegar út um gluggann og segi: Vá, þarna er London Eye! Þarna er Thames-áin!“

Þannig svarar sir Paul McCartney spurningu blaðamanns vefútgáfu breska ríkisútvarpsins, BBC, þess efnis hvort ekki sé ómögulegt fyrir svo frægan mann að láta sjá sig á almannafæri.

„Og ferðafélagi lítur upp og segir mögulega: Vá, þarna er Paul McCartney!“ segir blaðamaðurinn. „Já,“ svarar sir Paul hlæjandi. „Stundum líta þeir upp og taka ljósmynd sem þeir selja svo næsta dagblaði. Það er gjald frægðarinnar.“

Skondin saga en velta má fyrir sér um borð í hvaða lest sörinn hefur verið. Eru þær ekki allar neðanjarðar í miðborg Lundúna?

Ekki svo að skilja að Bítillinn fyrrverandi eigi ekki síma sjálfur. Hann segir einnig frá því í viðtalinu að hann hafi spókað sig um á Grand Central Station í New York og tekið myndir á símann sinn fyrir tónleika um liðna helgi. Og ekki sála abbaðist upp á hann. Makalaust.
Sir Paul hefur verið á þeysireið í erlendum fjölmiðlum undanfarið vegna útgáfu nýrrar breiðskífu, Egypt Station, sem kom út fyrir rúmri viku. Hann tók meðal annars þátt í svonefndu „Carpool Karaoke“ í þætti háðfuglsins James Cordens, The Late Late Show, þar sem hann endaði á því að troða óvænt upp á fábrotinni knæpu í fæðingarborg sinni, Liverpool á Englandi. Svo haka viðstaddra skall í óbónuðu gólfinu. Á dögunum hrekkti hann svo lyftufarþega í New York ásamt öðrum spjallþáttastjórnanda, Jimmy Fallon, og skaut upp kollinum á Snjáldru (Facebook) í fyrirspurnartíma hjá Jarvis Cocker. Galsi í karlinum, sem orðinn er 76 ára gamall. Fallon-atriðið var meinfyndið enda alltaf gaman að fylgjast með viðbrögðum fólks þegar það sér óvænt svona fræga manneskju á förnum vegi. Og þær verða víst ekkert mikið frægari en sir Paul McCartney.

Þráðu frægð

Kappinn býr líka að ómældri reynslu í þeim efnum. „Áður en við urðum frægir þráðum við frægð og engri var til að dreifa,“ segir sir Paul í BBC-viðtalinu og á þar við Bítlana. „Þegar við urðum loksins frægir var það notalegt, en síðan fór allt á annan endann, múgurinn byrjaði að ýta og þrífa í okkur. Stundum góluðu öryggisverðir: Burt með ykkur! Færið ykkur! og þá hljóp múgnum kapp í kinn. Þess vegna lærðum við að ganga beint af augum án þess að gera veður; maður vill ógjarnan gera geggjaðar aðstæður ennþá geggjaðri.“

Neyðin kennir greinilega nöktum Bítli að spinna.

Létt mun vera yfir sir Paul á nýju plötunni enda hefur hann aldrei ráfað langt frá rótunum, að sögn. „Upphaf rokksins er býsna skondið og skemmtilegt. Þetta á ekki að vera alvarlegt starf,“ segir hann. „Við féllum fyrir því þegar við heyrðum Elvis syngja Baby, Let’s Play House, sem hann fékk hjá blússöngvurunum, sem voru býsna sprækir líka.“

Bítlarnir á hátindi frægðar sinnar.
Bítlarnir á hátindi frægðar sinnar.

Lagið Come On To Me á nýju plötunni er í þeim anda. „Maður byrjar alltaf á litlum gítarfrasa eða einhverju slíku. Ég var kominn með lítið riff sem ýtti laginu úr vör og fór að hugsa um partíin á sjöunda áratugnum þegar maður kom auga á sæta stelpu sem brosti á móti og maður hugsaði með sér: Er hún til í tuskið eða er ég að lesa þetta vitlaust?

Ekki svo að skilja að þetta gerist í dag,“ flýtir hann sér að bæta við. „Það er svo algengt við lög að maður man eftir tilteknu atviki sem maður hverfur aftur til og málar myndina út frá þeirri minningu. Þetta er þannig lag.“

Tæplega hálfri öld eftir að þeir lögðu upp laupana kemst enginn listamaður með tærnar þar sem Bítlarnir hafa hælana þegar kemur að plötusölu og vinsældum, auk þess sem sir Paul hefur ekki vegnað illa með Wings og á sólóferli sínum. Spurður hvaða mælistiku hann leggi á velgengni í dag svarar hann: „Að ég sé ánægður með það sem ég hef gert. Það er mælistikan í dag. Allar viðurkenningar umfram það eru bónus.“

Og spurður hvort hann hafi í hyggju að hætta í náinni framtíð svarar hann með orðum Willys Nelsons: „Hætta hverju?“

Já, menn geta víst orðið milljarðamæringar á hobbíi sínu.

Nánar er fjallað um Sir Paul í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert