Að minnsta kosti 86 manns hafa fundist látnir eftir að ferjunni MV Nyerere hvolfdi á Viktoríuvatni í Tansaníu í gær. Óttast er að yfir 200 manns hafi drukknað.
Björgunaraðgerðir halda áfram í dag, en ferjunni hvolfdi nærri landi í gær, er hún var á siglingu á milli eyjanna Ukora og Bugolora.
Ástæða þess að ferjunni hvolfdi er talin vera sú að farþegarnir, sem voru líklega yfir 400 talsins, færðu sig flestir yfir á aðra hlið ferjunnar er hún nálgaðist höfn.
Ferjan hafði einungis leyfi til þess að flytja 100 manns, samkvæmt því sem BBC hefur eftir tansanískum fjölmiðlum.
Ótti og örvænting hefur gripið um sig hjá íbúum nærri slysstað og margir bíða þess að heyra af afdrifum ættingja sinna og annarra nákominna.
My prayers for the 86 departed souls. It is feared that more than 200 people may have drowned in Lake Victoria, Tanzania. This is sad. Africa is weeping. #PrayForTanzania pic.twitter.com/WKbofAsj1B
— The African Voice (@teddyeugene) September 21, 2018