Sextán manns fórust, þar af 12 almennir borgarar, í árás uppreisnarmanna á þorpið Beni í austurhluta Lýðveldisins Kongó.
AFP-fréttastofan hefur eftir lækni á sjúkrahúsi í nágrenninu að 16 hafi farist, 12 almennir borgarar og fjórir hermenn. Þá hafi átta særst í árásinni, sem gerð var seint í gærkvöldi, og fimm þeirra hafi verið almennir borgarar.