Hjúskaparbrot er ekki lengur glæpur á Indlandi eftir að æðsti dómstóll landsins kvað upp sinn dóm. Þar kom fram að lög þess efnis sem hafa verið við lýði frá nýlendutímanum mismuni konum.
Í lögunum sem eru rúmlega aldargömul kom fram að þeir menn sem sváfu hjá giftri konu án leyfis eiginmanns hennar höfðu framið hjúskaparbrot og áttu yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi.
„Að hugsa um hjúskaparbrot sem glæp væri skref aftur á bak,“ sagði í einróma dómi Hæstaréttar.
Konur gátu ekki lagt fram kæru samkvæmt lögunum eða verið ábyrgar sjálfar fyrir hjúskaparbrotum, aðeins karlar.
Dómstóllinn sagði að lögin svipti konur reisn sinni og ákvörðunarrétti og komi fram við þær eins og eign karla.
Einnig kom fram að hjúskaparbrot væri einkamál, þrátt fyrir að vera grundvöllur skilnaðar.
Hæstiréttur greindi frá því í dómi varðandi hjúskaparbrot árið 1954 að „það sé almennt viðurkennt að maðurinn sé sá sem tælir en ekki konan.“
Barist hafði verið fyrir því að lögunum yrði breytt fyrr á þessu ári og þau sögðu mismuna konum.
Fram kemur á vef BBC að ekki sé ljóst hversu margir hafi verið dæmdir fyrir hjúskaparbrot, þar sem engin gögn eru til þess efnis.