Mögulega heiðarleg frásögn beggja

Christine Blasey Ford og Brett Kavanaugh.
Christine Blasey Ford og Brett Kavanaugh. AFP

Brett Kavanaugh, sem tilnefndur er í embætti hæstaréttardómara, og Christine Blasey Ford, sem sakar hann um kynferðislegt ofbeldi fyrir 36 árum, eru bæði sannfærð um að minningar þeirra séu réttar.

Þau greinir hins vegar á um hvað gerðist. Elizabeth Loftus, sem er leiðandi í minn­is­rann­sókn­um og pró­fess­or í lög­um og minn­is­vís­ind­um við Kali­forn­íu­há­skóla í Irvine, segir að það sé mögulegt að þau séu bæði heiðarleg í frásögn sinni.

Loftus hefur rannsakað minni í áratugi og ræddi við AFP-fréttastofuna um vitnaleiðslur Ford og Kavanaugh fyrir dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings.

Christine Blasey Ford.
Christine Blasey Ford. AFP

Hann gæti trúað neitun sinni

„Hún var mjög trúverðug og viðkunnanleg. Flestir vildu trúa því sem hún sagði og hún virtist trúa eigin orðum. Hann leit út fyrir að vera mjög reiður en það er hægt að búast við því af einhverjum sem er ranglega sakaður um eitthvað,“ sagði Loftus.

„Ef hann gerði þetta og man ekki eftir því vegna þess að langt er um liðið eða vegna þess að hann drakk meira en venjulega og gleymdi þessu, þá gæti hann trúað neitun sinni,“ bætti hún við.

Brett Kavanaugh við vitnaleiðsluna í gær.
Brett Kavanaugh við vitnaleiðsluna í gær. AFP

Spurð sagði Loftus að það væri algengt að fólk misminnti eitthvað sem gerðist í raun og veru. „Þegar fólk upplifir eitthvað, sérstaklega eitthvað óþægilegt, þá man það helstu atriðin. Til að mynda man fólk ef það lenti í flugslysi en ekki eldsvoða en minni atriði gleymast,“ sagði Loftus og hélt áfram:

„Minnið breytist síðan þegar mismunandi fólki er sagt frá atburðinum.“

Biðskylda eða stöðvunarskylda?

Hún greindi frá rannsókn þar sem rannsakendur reyndu að hafa áhrif á minni þeirra sem tóku þátt. „Við sýndum fólki slys þar sem bíll ekur á biðskyldu en síðar sögðum við fólki að bíllinn hefði ekið á stöðvunarskyldu. Margir sögðust muna eftir því að hafa séð stöðvunarskyldu,“ sagði Loftus.

„Það er fremur auðvelt að breyta einhverjum atriðum í tengslum við minningar og það getur gerst ósjálfrátt.“

Getur verið handviss en samt haft rangt fyrir þér

Aðspurð sagði Loftus að það breyti litlu þótt fólk segist vera 100% öruggt um að eitthvað hafi gerst, eða ekki gerst. „Stundum er einhver handviss um eitthvað og hefur rangt fyrir sér,“ sagði Loftus og sagði að stundum væri einhver „nokkuð viss“ í byrjun máls en þegar komið væri í réttarsal væri sami aðili mjög viss og þar af leiðandi meira sannfærandi.

„Þá ertu með aðila sem er handviss um eitthvað en var það ekki áður. Við þurfum að spyrja hvers vegna þeir eru svona sannfærðir.“

Dóms­mála­nefnd öld­unga­deild­ar Banda­ríkjaþings samþykkti tilnefningu Kavanaugh í embætti dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna í kvöld. Fundur nefndarinnar hélt áfram að því loknu þar sem samþykkt var að fara fram á að Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, myndi fyrirskipa að al­rík­is­lög­regl­an (FBI) rann­saki að nýju ásak­an­ir um kyn­ferðis­brot á hend­ur Kavan­augh og féllst Trump á beiðni nefndarinnar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert