Stærð flóðbylgjunnar veldur heilabrotum

Flóðbylgjan skall harðast á strönd borgarinnar Palu þar sem ölduhæðin …
Flóðbylgjan skall harðast á strönd borgarinnar Palu þar sem ölduhæðin náði hæst sex metrum. AFP

Á meðan björgunarfólk etur kappi við tímann til að finna fólk á lífi í rústum á eyjunni Sulawesi á Indónesíu klóra vísindamenn sér í höfðinu yfir því hvernig skjálftinn gat valdið jafnstórri flóðbylgju og raun bar vitni.

Jarðskjálfti upp á 7,5 stig reið yfir eyj­una á föstudag og flóðbylgja, sem náði allt að sex metra hæð, fylgdi í kjöl­farið. Stjórnvöld á Indónesíu hafa staðfest að 1.347 manns hafi látið lífið en ótt­ast er að mun fleiri hafi lát­ist.

Skjálftinn var vissulega stór, meðal þeirra stærstu sem mælst hafa á jörðinni í ár, en þar sem hann varð við lárétta hreyfingu, það er við hjárek þegar tveir flekar rekast saman, var ekki búist við stórri flóðbylgju í kjölfarið. Alla jafna fylgir flóðbylgja ekki láréttri hreyfingu við jarðhræringar, að minnsta kosti ekki jafnhárri og gekk yfir Sulawesi. Því kom flóðbylgjan jarðeðlisfræðingum mikið á óvart.

Umdeildar flóðbylgjuviðvaranir

Eft­ir skjálft­ann var send út flóðbylgju­viðvör­un. Hins veg­ar var viðvör­un­in dreg­in til baka þegar al­manna­varn­ir töldu að hún myndi ekki ná landi líkt og mælingar gáfu til kynna. Sú varð þó raun­in og um tveggja til sex metra há flóðbylgj­an braut sér leið langt inn í land og lagði fjölda mann­virkja í rúst.

Fjöl­marg­ir hafa gagn­rýnt al­manna­varn­ir Indó­nes­íu fyr­ir að hafa aflétt flóðbylgju­viðvör­un of snemma. Al­manna­varn­ir full­yrða hins veg­ar að flóðbylgj­an hafi skollið á meðan viðvör­un­in var enn í gildi.

Skriðufall neðansjávar mögulegur áhrifaþáttur

Jarðeðlisfræðingar telja líklegast að skriðufall neðansjávar hafi orðið við skjálftann sem hleypti flóðbylgjunni af stað. Borgin Palu, þar sem flóðbylgjan varð hvað öflugust, er inni í flóa sem margfaldaði áhrif flóðbylgjunnar.

Skriðufall neðansjávar hefur hins vegar ekki verið staðfest af vísindamönnum en rannsókn á jarðskjálftanum og flóðbylgjunni er í fullum gangi.

„Fyrstu útreikningar mínir á aflögun sjávarborðsins við jarðskjálftann miða við 49 sentimetra,“ segir dr. Mohammad Heidarzadeh, aðstoðarprófessor við verkfræðideild Brunel-háskóla í Bretlandi, í samtali við breska ríkisútvarpið. Hann segir að miðað við hvernig skjálftinn kom til, það er við hjárek, hefði mátt búast við flóðbylgju upp á einn metra, ekki sex. „Það er því eitthvað meira í gangi. Tilgáturnar tvær eru góðar og gildar, aurskriða neðansjávar og útsogið í flóanum við Palu.“

Upptök og orsök skjálftans og flóðbylgjunnar ættu að skýrast nánar á næstu dögum og vikum. Von er á fleiri rannsakendum til Sulawesi til að meta áhrif og umfang hamfaranna.

Yfir tólf hundruð manns hafa fundist látnir eftir skjálftann. Hér …
Yfir tólf hundruð manns hafa fundist látnir eftir skjálftann. Hér má sjá sjálfboðaliða útbúa fjöldagröf í nágrenni borgarinnar Palu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert