Kína rýfur þögnina vegna Mengs

Sími Grace Hongwei með síðustu skilaboðunum sem hún fékk frá …
Sími Grace Hongwei með síðustu skilaboðunum sem hún fékk frá eiginmanni sínum. AFP

Meng Hongwei, forseti Interpol, sætir nú rannsókn og liggur undir grun fyrir lögbrot, segir í tilkynningu sem Almannaeftirlitsnefnd Kína birti á vefsíðu sinni.

Kínversk stjórnvöld hafa þar með rofið þögnina í máli Mengs sem einnig gegnir stöðu aðstoðarráðherra öryggismála í Kína. 

Lyndistákn (e.emoji) af hnífi voru meðal síðustu skilaboðanna sem Grace Meng, eiginkona Mengs, fékk áður en hann hvarf. Síðast spurðist til Mengs 25. september þegar hann yfirgaf Lyon á leið til Kína.

Grace sýndi blaðamönnum skilaboðin á símanum sínum í Lyon í …
Grace sýndi blaðamönnum skilaboðin á símanum sínum í Lyon í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert