Skaut tvo Ísraela til bana

AFP

Tveir Ísraelar létu lífið í skotárás í iðnaðarhverfi á Vesturbakkanum í morgun og sá þriðji særðist. Rúmlega tvítugur Palestínumaður stóð fyrir árásinni samkvæmt frétt AFP.

Haft er eftir talsmanni ísraelska hersins, Jonathan Conricus, í fréttinni að Palestínumaðurinn hafi unnið á svæðinu áður en hann hafi ráðist á Ísraelana. Hans væri nú leitað.

Conricus segir árásina hryðjuverk en að aðrir þættir hafi einnig haft áhrif. Palestínumaðurinn hafi notað heimagerða byssu til verksins sem þekkt sé undir nafninu Carlo.

Svo virðist sem Palestínumaðurinn hafi verið einn að verki að sögn Conricus.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert