933 aftökur í 23 löndum

Flestar aftökur áttu sér stað í Íran, Sádi-Arabíu og Pakistan …
Flestar aftökur áttu sér stað í Íran, Sádi-Arabíu og Pakistan en ekki eru veittar upplýsingar um aftökur í Kína. AFP

Ríkisstjórnir heims verða að binda enda á hina grimmilegu dauðarefsingu og taka nauðsynleg skref í átt að varanlegri aftökustöðvun, segir í ályktun frá Amnesty International í tilefni af alþjóðlegum degi gegn dauðarefsingum sem er í dag.

Koma á fram við fanga sem hlotið hafa dauðadóm af virðingu og tryggja skal að aðbúnaður þeirra standist alþjóðleg mannréttindalög og -viðmið, segir enn fremur í tilkynningu frá Amnesty International.

„Enginn á að þurfa að þola ómannúðlega meðferð eða aðbúnað í varðhaldi undir nokkrum kringumstæðum sama hver glæpurinn er. Samt sem áður eru mörg dæmi þess að fangar sem hlotið hafa dauðadóm séu látnir sæta strangri einangrun, fái ekki aðgang að nauðsynlegum lyfjum og búi við stöðugan ótta vegna mögulegrar aftöku,“ segir Stephen Cockburn, aðstoðarframkvæmdastjóri alþjóðamála hjá Amnesty International, í tilkynningu.

„Sú staðreynd að yfirvöld upplýsa fanga og aðstandendur þeirra um aftökuna aðeins með nokkurra daga eða jafnvel klukkustunda fyrirvara er grimmileg.

Öll ríki sem enn leyfa dauðarefsinguna skulu binda enda á hana og þær ómannúðlegu varðhaldsaðstæður sem allt of margir fangar eru neyddir til að þola.

Amnesty International hefur skrásett brot víða um heim og eru dæmi um að föngum hafi verið neitað um nauðsynleg lyf við sjúkdómum og langvarandi veikindum,“ segir í tilkynningu.

Mohammad Reza Haddadi, frá Íran, hefur verið á dauðdeild síðan hann var aðeins 15 ára gamall. Hann hefur þurft að þola sálrænar pyntingar þar sem a.m.k. sex sinnum á síðastliðnum 14 árum hefur aftökudagur verið ákveðinn en svo frestað.

Í Hvíta-Rússlandi er aftökum haldið frá augum almennings og þeim fylgir mikil leynd. Fangar, fjölskyldur þeirra og lögfræðingar fá oft ekki að heyra af áætlaðri aftöku fyrr en stuttu áður en hún fer fram.

Dauðarefsingar eru bannaðar í ríkjum Evrópusambandsins en heimilaðar í mörgum …
Dauðarefsingar eru bannaðar í ríkjum Evrópusambandsins en heimilaðar í mörgum ríkjum Bandaríkjanna. AFP

Engar upplýsingar um aftökur í Kína

Amnesty International skráði 993 aftökur í 23 löndum árið 2017, sem er 4% fækkun frá árinu á undan og 39% fækkun frá árinu 2015. Flestar aftökur áttu sér stað í Íran, Sádi-Arabíu og Pakistan. Þessar tölur fela ekki í sér upplýsingar um aftökur í Kína, en beiting dauðarefsingarinnar þar heldur áfram að vera ríkisleyndarmál, stjórnvöld halda uppteknum hætti og taka þúsundir einstaklinga af lífi á ári hverju.

Amnesty International er andvígt dauðarefsingum undir öllum kringumstæðum og vinnur að því að afnema hana í öllum löndum heims. Dauðarefsingin er grimmileg, ómannúðleg og niðurlægjandi. Hún er brot á réttinum til lífs. Óháð aðferðinni, hvort sem það er rafmagnsstóll, henging, gasklefi, hálshöggning, grjótkast, aftökusveit eða banvæn sprauta þá er dauðarefsingin ofbeldisfull og á ekki að fyrirfinnast í nútímaréttarkerfi.

Amnesty krefst þess að:

  • Aftökum verði hætt alls staðar í heiminum
  • Dauðarefsingin verði afnumin í lögum fyrir alla glæpi
  • Öll ríki heims fullgildi alþjóðlega sáttmála sem styðja afnám dauðarefsingarinnar, þar á meðal aðra valfrjálsu bókunina við alþjóðasamninginn um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, en bókunin lýtur að dauðarefsingunni og afnámi hennar.
  • Öll lönd, sem enn halda í dauðarefsinguna, framfylgi alþjóðlegum skyldum sínum um að taka ekki börn af lífi. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert