Fimm látnir í fellibylnum

AFP

Fjöldi látinna í fellibylnum Michael, sem gengið hefur á land í Flórída-ríki í Bandaríkjunum, er kominn í að minnsta kosti fimm samkvæmt frétt AFP.

Fram kemur að fjórir hafi látist norðvesturhluta Flórída og einn í Georgíu-ríki en þangað færðist fellibylurinn eftir að hafa gengið yfir svokallað Panhandle-svæði.

AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert