Leitar fólks sem stundaði kynlíf undir stýri

Ljósmynd/Wikipedia.org

Spænska lögreglan leitar nú að karlmanni og konu sem sáust stunda kynlíf á meðan karlinn ók bifreið á hraðbraut sem liggur á milli höfuðborgarinnar Madríd og borgarinnar Valladolid.

Fram kemur í frétt AFP að atvikið hafi átt sér stað 15. september og náðst á myndskeið sem tekið var upp úr annarri bifreið.

Myndskeiðið var síðan birt á netinu en þar sést karlinn sitjandi og konan nakin ofan á honum á milli hans og stýrisins.

Lögreglan hefur farið yfir nokkrar klukkustundir af myndefni úr eftirlitsmyndavélum til þess að reyna að bera kennsl á fólkið.

Finnist fólkið gæti það átt yfir höfði sér tveggja ára fangelsi og sekt upp á 500 evrur auk þess að vera svipt ökuréttindum í allt að sex ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert