Áttu „mjög gott“ spjall um viðskiptadeilu

Forsetarnir áttu langt og gott spjall um viðskiptadeilu ríkjanna.
Forsetarnir áttu langt og gott spjall um viðskiptadeilu ríkjanna. AFP

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, átti „mjög gott“ samtal við við Xi Jinping, forseta Kína, um harðnandi viðskiptadeilu á milli ríkjanna tveggja. Trump greindi frá þessu á Twitter.

„Átti langt og mjög gott samtal við Xi Jinping, forseta Kína. Við töluðum um ýmis mál, en lögðum mikla áherslu á viðskipti,“ skrifaði Trump.

Hann sagði að viðræður um deiluna þokuðust hægt og rólega í rétta átt og að fundir hefðu verið bókaðir á G20-ráðstefnunni sem fer fram í Buenos Aires í Argentínu í lok þessa mánaðar.

Forsetinn sagðist einnig hafa átt gott spjall við kínverska kollega sinn um málefni Norður-Kóreu.

Trump  til­kynnti það um miðjan septembermánuð að Banda­rík­in hygðust leggja inn­flutn­ing­stolla á kín­versk­ar vör­ur að and­virði 200 millj­arða Banda­ríkja­dala. Sú aðgerð var um­fangs­meiri en fyrri skær­ur í viðskipta­deilu ríkj­anna tveggja.

Kínverjar svöruðu því með því að tilkynna um nýja tolla á bandarískar vörur að andvirði 60 milljarða dala.

Þá hefur Trump sakað Kínverja um að reyna að hafa áhrif á bandarísku þingkosningarnar með því að leggja tolla á bandarískar vörur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert