Lögreglunni í Norður-Karólínu barst fyrir skömmu tilkynning um skotárás í framhaldsskóla í ríkinu. Engar fregnir hafa borist af manntjóni en James Rowell, lögreglustjóri í Pender-sýslu segir í samtali við WECT-fréttastofuna að maður vopnaður skotvopni gangi laus í Topsail-framhaldsskólanum, sem er um 20 kílómetra norður af borginni Wilmington.
Tilkynning barst klukkan 6:30 að staðartíma, klukkan 11:30 að íslenskum tíma. Um 1.300 nemendur stunda nám við skólann en ekki er ljóst hversu margir nemendur eru á svæðinu þar sem skólastarf hefst ekki fyrr en klukkan 8:30. Skólabílum sem voru á leið að skólasvæðinu hefur verið beint annað og hefur aðgengi að skólanum verið lokað.
There has been a reported active shooter situation at Topsail High School. Pender County Schools is taking all precautions to ensure the safety of students and staff.
— Pender Schools (@penderschools) November 9, 2018
Uppfært klukkan 15:07:
Ekki var um skotárás að ræða heldur bilaðan vatnshitara sem gaf frá sér hljóð sem minntu á skothljóð.