Helge Ingstad nærri sokkin

Freigátan er metin á um fjóra milljarða norskra króna.
Freigátan er metin á um fjóra milljarða norskra króna. AFP

Norska freigátan KNM Helge Ingstad, sem rakst á maltneskt olíuflutningaskip í Hjaltafirði nærri Björgvin í síðustu viku, er nær sokkin eftir að kaplar sem halda áttu skipinu á floti slitnuðu í nótt.

„Skipið er nú hreyfingarlaust í dýpra vatni,“ segir yfirmaður björgunaraðgerða sjóhersins, Havard Mathiesen, við blaðamenn í Noregi.

Skipið, sem ýtt var úr vör í nóvember 2007 og vegur um fimm þúsund tonn, tók inn á sig sjó eftir árekstur við olíuflutningaskipið Sola TS snemma á fimmtudagsmorgun. Orsakir slyssins eru ókunnar en átta slösuðust af áhöfn sem telur 137 manns. Freigátan var á leið til hafnar frá því að hafa tekið þátt í varnaræfingu NATO, Trident Juncture 18.

Helge Ingstad á siglingu árið 2014.
Helge Ingstad á siglingu árið 2014. AFP

Olíuflutningaskipið varð aðeins fyrir minni háttar skemmdum.

Skipverjar á Helge Ingstad gripu til þess ráðs á fimmtudag að sigla skipinu upp í sker undir sjávarmáli, til að varna því að skipið sykki. Eftir að kaplarnir slitnuðu í nótt hefur skipið hins vegar sokkið á meira dýpi.

Aðeins efsti hluti mastursins og hluti skutsins eru sjáanlegir ofar sjávarmáli. Norski sjóherinn segist nú athuga leiðir til að lyfta freigátunni á ný.

„Það er mjög erfitt fyrir sjóher að tapa skipi,“ segir aðmírállinn Nils Andreas Stensones, en freigátan er enn fremur metin á um fjóra milljarða norskra króna, eða tæpa 60 milljarða íslenskra króna.

Yfirvöld segjast hafa þrifið upp um 13 rúmmetra af dísilolíu sem munu hafa lekið úr skipinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert