Hafa ekki efni á að lyfta upp kafbátinum

Fjölskyldur ættingja þeirra 44 sem um borð voru komu saman …
Fjölskyldur ættingja þeirra 44 sem um borð voru komu saman í gær til að fá fréttir af fundi kafbátsins. AFP

Argentínska ríkið hefur ekki efni á að lyfta kafbátinum ARA San Juan af hafsbotni, en brak hans fannst í Atlantshafinu í gær þar sem það hafði legið á hafsbotni í ár. Þetta hefur BBC eftir  varnarmálaráðherra landsins.

San Juan hvarf með 44 manna áhöfn og í til­kynn­ingu frá arg­entínska hern­um á Twitter kom fram að brakið hafi fund­ist á 800 metra dýpi. 

Það var áhöfn björg­un­ar­skips­ins Sea­bed Constructor, sem er í eigu banda­ríska björg­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Oce­an In­finity, sem fann brakið, en skipið hafði verið við leit á þess­um slóðum síðan í sept­em­ber.

Gabriel Attis, yfirmaður argentínska hersins, hefur staðfest að sprenging hafi orðið í kafbátinum. Segir hann skrokk San Juan hafi fallið saman og aflagast og brakið sé nú dreift um 70 metra svæði.

Hluti af braki kafbátsins San Juan á hafsbotni.
Hluti af braki kafbátsins San Juan á hafsbotni. AFP

Ættingjar þeirra sem um borð voru krefjast nú þess að stjórnvöld láti koma kafbátinum upp á yfirborðið.

Yolanda Mendiola, móðir eins úr áhöfn kafbátsins segir fjölskyldur áhafnarinnar hafa komið saman til að fá nýjustu fréttir af stöðu mála. Hún hvatti stjórnvöld til að koma brakinu upp. „Ef við sjáum það ekki, þá fáum við ekki lúkningu. Þess vegna ætlum við að krefja forseta Argentínu um að finna leið til að koma þeim upp af því að það er hægt, [Sea Constructor] segir það,“ sagði Mendiola.

Fjar­skipta­sam­band hers­ins við áhöfn kaf­báts­ins rofnaði 15. nóv­em­ber í fyrra en þá var hann í um 450 km fjar­lægð frá strönd Arg­entínu. Kaf­bát­ur­inn var á leið til hafn­ar frá Us­huaia, sem er syðsti oddi Arg­entínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert