„Hann dó eins og vígamaður“

Ljósmynd af Anucha Tasako við hlið kistu hans meðan útför …
Ljósmynd af Anucha Tasako við hlið kistu hans meðan útför drengsins var gerð frá Búddahofi í Samutprakarn-héraði. AFP

Hann var sleginn kaldur í þriðju lotu í góðgerðarbardaga í úthverfi Bangkok um síðustu helgi og stóð ekki upp aftur. Banamein hans var heilablæðing. Í húfi var andvirði ríflega 7.000 íslenskra króna. Anucha Tasako var aðeins þrettán ára gamall og andstæðingur hans í þessum hinsta bardaga tveimur árum eldri.

Tasako hafði lagt stund á sparkbox frá átta ára aldri og tekið þátt í 170 bardögum, að því er fram kemur í taílenskum fjölmiðlum. Nú síðast í undir 41 kg flokki. Hann ólst upp hjá frænda sínum eftir að foreldrar hans skildu og notaði launin fyrir bardagana til að greiða skólagjöld og taka þátt í útgjöldum heimilisins. Síðasti bardaginn var tekinn upp á síma og hefur málið vakið hörð viðbrögð í Taílandi og víðar enda staðfestir upptakan að Tasako var ekki með neinn hlífðarbúnað í hringnum. Upptakan sýnir aðstoðarmenn þyrpast að Tasako eftir að hann leið út af eftir þung höfuðhögg en allt kom fyrir ekki. Honum varð ekki bjargað.

Ein vinsælasta íþróttin

Barnabox, Muay Thai, er ein vinsælasta íþróttagreinin í Taílandi, ekki síst í sveitahéröðum landsins. Aðstandendur hafa réttlætt framkvæmdina með þeim rökum að boxið sé góð leið fyrir börnin til að afla fjár fyrir sjálf sig og fjölskyldur sínar sem geti jafnvel slitið sig varanlega úr fjötrum fátæktar.

En reglur eru af skornum skammti og keppendur fara ekki með neinn hlífðarbúnað inn í hringinn. Þetta hefur verið harðlega gagnrýnt, ekki síst eftir fráfall Tasakos, enda benda fjölmargar rannsóknir til þess að box án hlífðarbúnaðar geti valdið heilaskaða. Í rannsókn sem vísindamenn við Mahidol-háskóla í Taílandi birtu fyrir skömmu kemur fram að börn undir fimmtán ára aldri séu í sérstökum áhættuflokki.

Taílenska þingið íhugar nú lagabreytingu sem banna myndi börnum yngri en tólf ára að keppa í boxi og eftir dauða Tasakos sagði íþróttamálaráðherra landsins, Weerasak Kowsurat, brýnt að hraða þeirri vinnu. Læknar hafa stutt frumvarpið en nýju lögin hefðu eigi að síður ekki bjargað Tasako enda var hann orðinn þrettán ára.

Mjög hæfileikaríkur

Rætt hefur verið um aðrar leiðir og frændi hins látna, Damrong Tasako, sem líka er boxþjálfari, hefur tjáð sig um málið. „Ég myndi vilja sjá lög sem skylda boxara undir fimmtán ára aldri til að vera með hlífðarbúnað,“ sagði hann við dagblaðið Thai Rath en það myndi milda höggin, bæði fyrir höfuð og búk.

Einnig er haft eftir Tasako að dauði frænda hans hafi verið slys. „Hann var bardagamaður og dó eins og sannur vígamaður. Hann var mjög hæfileikaríkur og ól þann draum í brjósti að berjast á stærstu Muay Thai-leikvöngum landsins. Hann langaði líka að fara í herskóla,“ sagði frændinn.

Þrátt fyrir andlát Tasakos sjá aðstandendur greinarinnar ekki ástæðu til að breyta löggjöfinni enda myndi það hafa afdrifarík áhrif á keppnina.

Algjör undantekning

Sukrit Parekrithawet, lögmaður nokkurra æfingabúða fyrir barnaboxara, er þeirrar skoðunar að andlát Tasakos hafi verið algjör undantekning og dregur skipuleggjendur bardagans til ábyrgðar. „Þetta hefur aldrei gerst áður og er án hliðstæðu,“ sagði hann við fjölmiðla í Taílandi. „Ýmsum þáttum er um að kenna og þeir hafa ekkert með aldur að gera. Dómarinn var of seinn að stöðva bardagann og ekki var læknir á staðnum, sem á alls ekki að gerast.“
Samfélagsmiðlanotandi, sem dagblaðið Daily Monitor í Úganda vitnar til, tekur í sama streng. „Hann stóð varla í fæturna. Hvers vegna í ósköpunum stöðvaði dómarinn ekki bardagann, heldur leyfði höggunum að dynja á honum þangað til hann féll í gólfið?“

Parekrithawet lögmaður óttast um framtíð íþróttarinnar, taki nýju lögin gildi. „Þeir sem sömdu frumvarpið hafa ekki hundsvit á taílensku boxi. Ef menn leyfa ekki ungum boxurum að taka þátt, hvernig eiga þeir þá að verða nógu sterkir og reynslumiklir til að berjast? Við köllum þetta „boxarabein“ og þau byggja menn upp frá mjög ungum aldri.“

Keppinauturinn iðrast

Útför Anucha Tasako var gerð frá Búddahofi í Samutprakarn-héraðinu á miðvikudag og lík hans brennt degi síðar. Meðal þeirra sem vottuðu honum virðingu sína var drengurinn sem barðist við hann um liðna helgi en hann hafði áður lýst því yfir á Facebook að hann harmaði atvikið. „Ég sé eftir þessu en ég verð að gera mitt besta til að vinna bardagana svo ég geti borgað fyrir skólagöngu mína,“ skrifaði hann.

Í samtali við CNN viðurkenndi drengurinn að hafa fengið dembu yfir sig á samfélagsmiðlum en einnig mikinn stuðning. Spurður hvort atvikið breytti einhverju um framtíðaráform hans hristi drengurinn höfuðið. „Mig langar að halda áfram sem Muay Thai-boxari og sjá hversu langt ég get náð.“

Boxþjálfarinn Somsak Deerujijaroen horfir á bardagann örlagaríka í símanum sínum.
Boxþjálfarinn Somsak Deerujijaroen horfir á bardagann örlagaríka í símanum sínum. AFP
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert