Hvetur til samstöðu

Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, hvetur til þess að Frakkar og Þjóðverjar taki höndum saman um að styrkja stöðu Evrópu svo hægt sé að koma í veg fyrir ringulreið í heiminum. Macron og kanslari Þýskalands, Angela Merkel, hafa að undanförnu nýtt sér samkomur í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá lokum fyrri heimsstyrjaldar til að boða sameiningu gegn lýðskrumi og þjóðernishreyfingum í Evrópu og einangrunarstefnu Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna.

Kosningar fara fram til Evrópuþingsins eftir hálft ár og er búist við því að þjóðernishreyfingar sæki þar á. Macron biðlaði til sameiningar Evrópu og samstarfs við Þjóðverja þegar hann ávarpaði þýska þingið í gær. 

Macron segir að Evrópa hafi verið fremst í flokki varðandi græna orkukosti og í baráttunni gegn loftlagsbreytingum. Samstarf skipti miklu þegar komi að viðskiptum, öryggi, flóttafólki og umhverfismálum. Macron var í gær fyrsti forseti Frakklands til þess að ávarpa þýska þingið í 18 ár. 

Merkel tók undir með Macron og mikilvægi þess að Evrópa standi saman á þeim krossgötum sem hún sé á um þessar mundir. 

Í síðustu viku dró Trump ríkin tvö sundur og saman í háði á Twitter þar sem hann sagði meðal annars að það hafi verið Þýskaland í fyrri og seinni heimstyrjöldinni. Hvaða áhrif hafði það á Frakkland? spurði Trump meðal annars. 

Vinsældir Macron hafa dalað mjög í heimalandinu og þar hefur fólk mótmælt víða hækkun á eldsneytisverði. Um er að ræða mótmæli sem ganga undir nafninu „gulu vestin“ (gilets jaunes) og er talið að yfir 300 þúsund hafi tekið þátt í mótmælum um helgina. 

Staðan er síst betri fyrir Merkel og þrátt fyrir að hún ætli sér að sitja á valdastóli til loka kjörtímabilsins 2021 þá efast margir um að það sé raunhæft fyrir hana miðað við óvinsældir hennar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert