Ekið inn í hóp barna

AFP

Fimm eru látnir og átján slasaðir eftir að bifreið var ekið inn í hóp skólabarna sem var að fara yfir götu á gangbraut fyrir utan grunnskóla í Liaoning-héraði í Kína áðan. 

Að sögn lögreglu var ökumaðurinn handtekinn og er málið í rannsókn. Fjölmörg myndskeið af atvikinu eru í umferð á samfélagsmiðlum en á þeim sést bifreið ekið yfir á rangan vegarhelming og inn í hóp barna á töluverðum hraða.

Á einu myndskeiði sjást tvö börn liggjandi á götunni, alblóðug og hreyfingarlaus. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert