Á heimleið eftir tveggja ára hörmungar

Nancy Roxana Papa ásamt Bassam Sahiouni sem er einn þeirra …
Nancy Roxana Papa ásamt Bassam Sahiouni sem er einn þeirra sem kom henni til aðstoðar. AFP

Argentínsk kona á sextugsaldri er á leið heim eftir að hafa verið tæld til Sýrlands fyrir tveimur árum. Konan hafði kynnst Sýrlendingi á netinu og fór til þess að ganga í hjónaband með honum.

Nancy Roxana Papa, sem er sögukennari, fór til Tyrklands árið 2016 og hitti tilvonandi eiginmann þar á hóteli. Hann fékk hana með sér til Sýrlands til þess að kynna hana fyrir foreldrum sínum. Hún fór  með ólöglegum hætti inn í Sýrland en fljótlega eftir komuna þangað var henn rænt af mannræningjum sem biðu hennar. Þeir kröfðu dóttur hennar um lausnargjald. Ári síðar tókst henni að flýja og frá þeim tíma hefur hún verið á flótta innanlands í Sýrlandi. 

Yfirvöld í Idlib, með aðstoð mannúðarsamtaka, komu Papa til aðstoðar og er hún nú komin til Tyrklands á leiðinni heim til Argentínu að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert