Ræða viðbrögð Löfven við kröfum sínum

Annie Lööf, formaður Miðflokksins í Svíþjóð.
Annie Lööf, formaður Miðflokksins í Svíþjóð. AFP

Stjórn sænska Miðflokksins mun funda í dag og ræða viðbrögð Stefans Löfven, formanns Sósíaldemókrata, við kröfum sem Miðflokkurinn hefur sett fram gegn því að styðja hann í embætti forsætisráðherra.

Stjórnmálasérfræðingur Sænska ríkisútvarpsins segir að Annie Lööf, formaður Miðflokksins, verði að fá grænt ljós frá sínum flokki áður en lengra er haldið.

Stjórnarkreppa hefur ríkt í Svíþjóð allt frá kosningunum í september. Löfven bað í gær forseta þingsins um lengri tíma til að kanna möguleika til stjórnarmyndunar, að því er talið er til að meta þær kröfur sem Miðflokkurinn hefur sett fram. Talið er að jafnaðarmenn séu tilbúnir að ganga nokkuð langt til að myndun ríkisstjórnar gangi upp en þó segja sérfræðingar að yfir ákveðnar línur verði ekki farið. 

Greidd verða at­kvæði um að setja Löf­ven í embætti for­sæt­is­ráðherra á miðvikudag. Hann hef­ur því enn um tvo daga til að mynda starfs­hæfa rík­is­stjórn, ræða við for­menn flokka og afla stuðnings.

Talið er full­víst að hann njóti stuðnings eig­in flokks auk sam­starfs­flokk­sins Græn­ingja en það næg­ir ekki til þess að hafa meiri­hluta á þingi. Stuðningur annars flokks eða annarra flokka er nauðsynlegur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert