Prinsessan sem hvarf

Sjeika Latifa í myndbandinu sem hún gerði áður en hún …
Sjeika Latifa í myndbandinu sem hún gerði áður en hún reyndi að flýja land.

„Hennar hátign Sjeika Latifa er heil á húfi í Dúbaí. Hún og fjölskylda hennar hlakka til að halda í ró og næði upp á afmæli hennar í dag og að leggja drög að gæfuríkri og öruggri framtíð henni til handa.“

Það er líklega ekki á hverjum degi sem faðir ungrar konu sér sig knúinn, fyrir atbeina skrifstofu sinnar, að senda frá sér svohljóðandi yfirlýsingu en Sjeik Mohammed bin Rashid Al Maktoum, leiðtogi furstadæmisins Dúbaí og forsætisráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna, fann sig knúinn til þess síðastliðinn miðvikudag enda hefur ekkert sést til dóttur hans um nokkurra mánaða skeið og vinir hinnar 33 ára gömlu Sjeiku Latifu segjast ekki hafa heyrt frá henni síðan í mars á þessu ári að hún gerði tilraun til að flýja furstadæmið. Instagram-reikningi hennar var lokað á sama tíma.

Yfirlýsingunni fylgdu engar myndbandsupptökur af dótturinni né orð sem höfð voru beint eftir henni sjálfri. Á hinn bóginn kemur fram að hún sé „elskuð og dáð“ af fjölskyldu sinni.

Skútan gufaði upp

Latifa lagði af stað á sjóskíðum frá Óman ásamt finnskri vinkonu sinni, Tiina Jauhiainen, undir lok febrúarmánaðar og staðfest er að hún fór um borð í skútu fransk/bandaríska skipstjórans Hervé Jaubert, Nostromo. 4. mars gufaði skútan upp á Indlandshafi, að því er virtist, og þegar ekkert hafði spurst til Latifu í heila viku var upptaka sem hún hafði gert skömmu áður gerð opinber. Í henni greinir Latifa frá því að hún hafi haft áform um að flýja frá Dúbaí enda hafi hún sætt illri meðferð frá hendi föður síns, ásamt systur sinni, Shamsa, sem ekki hefur sést opinberlega frá árinu 2000, að hún sjálf reyndi að flýja land. Shamsa er fjórum árum eldri en Latifa.

„Sért þú að horfa á þetta myndband er það hið versta mál; ég er annaðhvort látin eða í mjög, mjög, mjög slæmri stöðu,“ segir Latifa í myndbandinu.

Sjeik Mohammed bin Rashid Al Maktoum, til hægri.
Sjeik Mohammed bin Rashid Al Maktoum, til hægri. AFP

Einnig kemur fram að Shamsa sé í stöðugri „heilsugæslu“, ef svo má að orði komast, heima í Dúbaí; hjúkrunarfræðingar víki ekki frá henni.

Sjö ár að undirbúa flóttann

Í nýrri heimildarmynd á BBC segjast vinir Latifu hafa hjálpað henni að undirbúa flóttann. Það verkefni hafi tekið heil sjö ár og Latifa hafi frekar viljað deyja en snúa aftur til Dúbaí.
Engin leit að Nostromo var sett í gang í Dúbaí og indverska strandgæslan kannaðist ekki við málið. Finnar hófu á hinn bóginn formlega leit að Jauhiainen eftir að fjölskylda hennar fór að sakna hennar og staðfesti vinskapinn við Latifu.

20. mars skaut skútan upp kollinum í Fujairah, sem er eitt af furstadæmunum, og um borð voru Jaubert og þriggja manna áhöfn frá Filippseyjum. Hvorki Latifu né Jauhiainen var þar að finna. Skútunni var hleypt áfram sem leið lá til Srí Lanka. Tveimur dögum síðar upplýsti finnska utanríkisráðuneytið að Jauhiainen væri fundin án þess að tilgreina hvar né hvað á daga hennar hefði drifið. Hún mun í framhaldinu hafa snúið heim til Finnlands.

Segir henni hafa verið rænt

Sem fyrr segir hefur ekkert spurst til Latifu síðan í mars en vitni fullyrða að vopnaðar sveitir hafi farið um borð í skútuna úti fyrir Goa í Indlandi og tekið hana í sína vörslu. Í yfirlýsingunni frá föður hennar kemur fram að Latifa hafi verið undir sterkum áhrifum frá Hervé Jaubert, skipstjóra skútunnar, sem sé fyrrverandi njósnari og andsnúinn íslam; það hafi hann margsýnt í skrifum sínum.

Raunar heldur sjeikinn því fullum fetum fram að Jaubert hafi rænt dóttur sinni og farið fram á lausnargjald eftir að hún fór frá Dúbaí.

Það kemur ekki heim og saman við myndband Latifu og fullyrðingar vina hennar. Þá hafa mannréttindasamtökin Detained í Dúbaí haldið því fram að Latifa hafi haft samband við þau frá skútunni, þar sem hún kvaðst vera mjög spennt yfir flóttanum en óttaðist að hún yrði stöðvuð. Samtökin fullyrða að hún hafi sent sér skilaboð eftir að hinar vopnuðu sveitir ruddust um borð í skútuna og grátbeðið samtökin um hjálp.

Einnig má velta fyrir sér hvers vegna Jaubert var ekki handtekinn úr því þeir furstungar náðu í skottið á honum.

Sætti barsmíðum

Jauhiainen hefur ekkert tjáð sig um málið opinberlega og Jaubert sama og ekkert. Í breska blaðinu The Guardian kemur þó fram að hann hafi sagst hafa sætt barsmíðum meðan á inngripi hinna vopnuðu sveita stóð um borð í skútunni og verið haldið um stund af yfirvöldum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 

Eftir stendur að ekkert hefur spurst til Sjeiku Latifu frá því í mars og við höfum aðeins orð fjölskyldu hennar fyrir því að hún sé heil á húfi.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert