Mótmælendur saka Macron um blekkingar

Gulu vestin lokuðu á umferð um A9-hraðbrautina eftir ræðu forsetans.
Gulu vestin lokuðu á umferð um A9-hraðbrautina eftir ræðu forsetans. AFP

Mótmælendur, eða „gulu vestin“ svonefndu gáfu lítið fyrir loforð Emmanuel Macrons Frakklandsforseta í sjónvarpsávarpi forsetans í gærkvöldi. „Vitleysa“, „látalæti“, „blekkingar“ og „dropi í hafið“ voru meðal þeirra viðbragða sem AFP-fréttaveitan fékk hjá mótmælendum eftir ræðu Macrons. Aðrir töldu viðleitni forsetans hins vegar lofsverða.

Macron lof­aði í sjónvarpsávarpi sínu til frönsku þjóðarinnar í gærkvöldi bæði hækk­un lág­marks­launa og skattaí­viln­un­um í til­raun til þess að lægja mót­mæla­öld­una.

Mót­mæl­end­ur, sem klæðast gjarn­an gul­um vest­um, hafa valdið mikl­um usla í Par­ís og víðar í Frakklandi. Þeir mót­mæla meðal ann­ars hækk­un á eldsneyt­is­skött­um, en hundruð hafa verið hand­tek­in í tengsl­um við mót­mæl­in.

Við hringtorg í bænum Le Boulou í Suður-Frakklandi hlýddu mótmælendur á orð forsetans sem varpað var yfir mannfjöldann í gegnum hátalara áður en mótmælin hófust að nýju. „Við sjáum að hann er ekki einlægur. Þetta eru allt blekkingar,“ sagði bifvélavirkinn Jean-Marc, sem var einn mótmælendanna.

„Þetta er bara sýning fyrir fjölmiðla. Smávægilegar aðgerðir. Þetta er næstum ögrun,“ sagði Thierry, hjólaviðgerðamaður sem klæddist fyrst gula vestinu fyrir hálfum mánuði. „Allt þetta leikhús tekur ekki á alvarlegustu vandamálunum,“ bætti hann við og tók því næst til við að loka á umferð á landamærum Frakklands og Spánar.

Innan við klukkutíma eftir ræðu Macrons var búið að loka fullkomlega á umferð milli landanna um A9-hraðbrautina.

Mótmælendur komu víða saman og hlýddu á ræðu forsetans.
Mótmælendur komu víða saman og hlýddu á ræðu forsetans. AFP

Kemur þremur vikum of seint

„Ef Macron hefði flutt þessa ræðu fyrir þremur vikum, þá hefði það kannski róað fólk. En nú er það of seint,“ sagði Gaetan, sem mótmælti í Rennes. „Hvað okkur varðar er þessi ræða bull.“

Macron lof­aði því að lág­marks­laun yrðu hækkuð um 100 evr­ur frá og með 2019 og að fallið verði frá áætl­un­um um aukna skatt­lagn­ingu á lægstu tekju­hópa í land­inu. Þá verða at­vinnu­veit­end­ur hvatt­ir til þess að greiða starfs­fólki sínu skatt­frjálsa bónusa í lok árs­ins.

For­set­inn sagði frönsku þjóðina ósátta við lífs­skil­yrði í Frakklandi og að hann ætti lík­lega sína sök á því, enda hafi fólki fund­ist eins og ekki hafi verið á það hlustað.

Tillögurnar ekki alslæmar

Ekki voru  allir á því að ræða Macrons væri bull og sögðu sumir mótmælendur að forsetinn sýndi ákveðin skilning á vanda þeirra. „100 evra hækkunin er ekki alslæm,“ sagði Erwan, talsmaður mótmælenda í Rennes.

Viðbót fyrir þá ellilífeyrisþega sem fá innan við 2.000 evrur í lífeyri væri líka af hinu góða, sem og tillagan um skattfrjálsa bónusa í árslok.

„Það eru nokkrar góðar hugmyndir þarna,“ sagði Claude Rambour sem mótmælir í Calais. „Þarna er viðurkenning á ábyrgð sem kemur of seint, en við munum ekki hrækja á hana.“ Macron hefði samt átt að ganga lengra, bætti hann við og kvaðst óttast að tillaga forsetans muni mynda klofning meðal mótmælenda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert