Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að taka til skoðunar mál bandarísks sérsveitarmanns sem ákærður hefur verið fyrir morð, sem hann greindi frá er hann sótti um starf hjá bandarísku leyniþjónustunni (CIA).
Hermaðurinn Matthew Golsteyn, sem var háttsettur liðsforingi og liðsmaður grænu alpahúfanna (e. green beret), er sagður hafa skotið afganskan mann til bana þegar hann var staddur í Afganistan árið 2010. Golsteyn sagði að hann hefði haldið að maðurinn væri sprengjugerðarmaður úr röðum talibana. Hann hefur hins vegar lýst sig saklausan af morðákærunni.
Sagðist Trump á Twitter í dag ætla að skoða mál Golsteyn.
Golsteyn „gæti átt dauðarefsingu frá okkar eigin stjórnvöldum yfir höfði sér“, skrifaði forsetinn og kvaðst ætla að íhlutast um málið „að beiðni margra“.
At the request of many, I will be reviewing the case of a “U.S. Military hero,” Major Matt Golsteyn, who is charged with murder. He could face the death penalty from our own government after he admitted to killing a Terrorist bomb maker while overseas. @PeteHegseth @FoxNews
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) December 16, 2018
BBC segir hins vegar óljóst hvað Trump hafi átt við með þessum orðum sínum. Afskipti forsetans, sem æðsta yfirmanns hersins, af málinu gætu hins vegar talist ólögleg og haft þannig í það í för með sér málaferlin gegn Golsteyn teldust ógild.
Talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins sagði í dag að ásakanirnar gegn Golsteyn séu „málefni lögreglunnar“ og að varnarmálaráðuneytið muni virða það ferli.