Góðgerðastofnun Donalds Trump Bandaríkjaforseta, the Donald J. Trump Foundation, mun hætta starfsemi og verða leyst upp í umsjá dómstóla, í kjölfar þess að dómstóll í New York-ríki ákvað að heimila lögsókn ríkissaksóknaraembættisins í ríkinu á hendur stofnuninni. Stofnunin hefur undirritað samkomulag við ríkissaksóknara hvað þetta varðar, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá ríkissaksóknaraembættinu.
Ríkissaksóknarinn, Barbara Underwood, hefur sakað Trump og þrjú elstu börn hans um að nota góðgerðastofnunina til eigin hagsbóta. Í lögsókninni fer saksóknarinn fram á að þau greiði milljónir Bandaríkjadala aftur til stofnunarinnar eða í sektir, auk þess sem Trump og börnum hans verði meinað að sitja í stjórnum góðgerðarfélaga í New York-ríki.
Haft er eftir Underwood í fréttatilkynningu að við rannsókn á stofnuninni, sem staðið hefur yfir frá því árið 2016 þegar Trump var enn bara forsetaframbjóðandi, hefði komið í ljós „yfirgengilegt mynstur lögleysu,“ sem meðal annars fæli í sér ólögmæt tengsl góðgerðastofnunarinnar við forsetaframboð Trumps, auk endurtekinnar sjálftöku.
Segir saksóknarinn að þessi lögleysa hafi leitt til þess að Trump Foundation hafi í raun verkað sem lítið annað en „tékkhefti“ sem hafi þjónað viðskipta- og stjórnmálahagsmunum Bandaríkjaforseta.
Málarekstur New York-ríkis gegn stofnun forsetans mun halda áfram og Underwood segir að stjórnendur stofnunarinnar og aðrir sem ábyrgir séu fyrir „augljósum og endurteknum“ brotum á ríkis- og alríkislögum verði dregnir til ábyrgðar.
Trump og börn hans þrjú hafa ekki enn brugðist við þessum tíðindum opinberlega, en BBC rifjar upp tíst forsetans frá því í júní síðastliðnum, þar sem hann sagði „sóðalegu Demókratana í New York“ vera að gera allt sem þeir gætu til þess að lögsækja sig vegna málsins og hrakyrti Eric Schneiderman fyrrverandi ríkissaksóknara, sem hóf rannsókn málsins árið 2016.