Minnast kvennanna sem voru myrtar

Kveikt var á kertum í Rabat til minningar um konurnar.
Kveikt var á kertum í Rabat til minningar um konurnar. AFP

Fjöldi fólks í Marokkó kom saman í dag til að syrgja skandinavísku vinkonurnar Mar­en Ue­land og Louisa Vestera­ger Jes­per­sen. Þær voru myrtar í Marokkó en lík þeirra fundust á mánudag.

Talið er að mörg hundruð manns hafi vottað Ueland og Jespersen virðingu sínu fyrir utan sendiráð Noregs og Danmerkur í höfuðborg Marokkó, Rabat.

Á skiltum sem fólk hafði meðferðis stóð meðal annars „Hvílið í friði Maren og Louisa“ og „hryðjverk tengjast ekki trú eða þjóðerni“ og „fyrirgefið.“

Einnar mínútu þögn var haldin í viðurvist diplómata frá Danmörku og Noregi.

Kvennanna var minnst á nokkrum stöðum í Marokkó.
Kvennanna var minnst á nokkrum stöðum í Marokkó. AFP

Einnig kom stór hópur saman í ferðamannabænum Imlil en konurnar fundust látnar í þorpi í Atlas­fjöll­un­um í El Haouz-héraði, skammt frá bænum. Auk þess var kveikt á kertum til minningar um konurnar í Marrakesh.

Alls eru 13 í haldi í tengslum við morðin en yfirvöld hafa lýst þeim sem hryðjuverkum. Sendiherrar Noregs og Danmerkur í Marakkó hafa þakkað almenningi og yfirvöldum í landinu fyrir stuðninginn og samúðina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert