Grunur um ebólu í Svíþjóð

Ebóla er ban­vænn og mjög smit­andi vírus sem erfitt hef­ur …
Ebóla er ban­vænn og mjög smit­andi vírus sem erfitt hef­ur reynst að hemja er hann hef­ur komið upp. Mynd úr safni. AFP

Bráðamóttöku á spítalanum í Enköping í Svíþjóð hefur verið lokað eftir að grunur um ebólu kom upp. Sjúklingurinn sem um ræðir hefur verið settur í einangrun á spítala í Uppsala en hann kom til Svíþjóðar frá Búrúndí fyrir þremur vikum og fann fyrir einkennum síðustu daga, að því er fram kemur í frétt Expressen.

„Ákveðið var að loka bráðamóttökunni þar til við náum fullri stjórn á aðstæðum,“ segir Mikael Köhler, framkvæmdastjóri lækninga á spítalanum í Enköping.

Ebóla er ban­vænn og mjög smit­andi vírus sem erfitt hef­ur reynst að hemja er hann hef­ur komið upp. Sér­stak­lega breiðist hann hratt út í þétt­býli. Einkennin sem sjúklingurinn fann fyrir og þykja benda til að um ebólu sé að ræða eru blóðug uppköst og blóð í saur.

Sýni hefur verið tekið úr sjúklingnum og búast má við niðurstöðu í kvöld hvort um ebólu sé að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert