Að minnsta kosti átta friðargæsluliðar á vegum Sameinuðu þjóðanna voru drepnir í skotárás á bækistöð friðargæsluliðanna í norðurhluta Malí í morgun, um 200 kílómetra norður af bænum Kidal, í grennd við landamærin að Alsír. Hinir látnu voru allir frá Chad.
Sameinuðu þjóðirnar hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að samtökin fordæmi árásina.
Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum í Malí eru að minnsta kosti sex látnir og 19 særðir og heimildir diplómata á svæðinu herma að nokkrir árásarmannanna hafi látist í árásinni.
Verkefnið sem þeir látnu störfuðu að er talið eitt það hættulegasta á vegum Sameinuðu þjóðanna. Verkefnið ber heitið MINUSMA og miðar að því að koma á stöðugleika í Malí. Um 13.000 friðargæsluliðar starfa í Malí. Árásir á bækistöðvar friðargæsluliða í Malí eru ekki einsdæmi og var síðast gerð árás á þessa tilteknu bækistöð í apríl í fyrra þar sem tveir létu lífið og nokkrir særðust.