Sagðir hafa hvatt til uppreisnar gegn Maduro

Liðsmenn í þjóðvarðliði Venesúela hafa verið handteknir eftir að hafa gert uppreisn gegn ríkisstjórn Nicolás Maduro forseta Venesúela að því er BBC greinir frá. Í myndböndum sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum sjást þjóðvarðliðarnir kalla eftir því að Maduro láti af embætti.

Greint var frá því í yfirlýsingu frá varnarmálaráðuneyti Venesúela í dag að mennirnir hafi lagt hald á vopn í herstöð í höfuðborginni Caracas. Eru myndböndin einnig sögð sýna átök íbúa og öryggislögreglu í nágrenninu í Cotiza-hverfinu í borginni.

Um ár er nú liðið frá því að Óscar Pérez, þyrluflugmaður og fyrrverandi lögreglumáður, varpaði handsprengju að stjórnarbyggingum í landinu. Hann var drepinn eftir níu tíma umsátur lögreglu.

Mótmælendur í Cotiza-hverfinu í Caracas.
Mótmælendur í Cotiza-hverfinu í Caracas. AFP

Varnarmálaráðuneytið segir „lítinn hóp“ þjóðvarðliða hafa stolið vopnum úr herstöðinni og eru þeir sagðir hafa tekið fjóra flugliðsforingja í gíslingu áður en þeir héldu í Cotiza-hverfið í Caracas snemma í morgun.

Á myndbandi sem birt var á Twitter sést maður í einkennisbúningi hermanns segjast vera að bregðast við fyrir hönd almennings í Venesúela og hvetur hann Venesúelabúa til að þyrpast út á göturnar og mótmæla stjórninni. Segir varnarmálaráðuneytið þá hafa mætt „harðri andspyrnu“ hermanna sem hliðhollir séu stjórnvöldum.

Mikil mótmælabylgja gekk yfir Venesúela í apríl og maí 2017, en mikil efnahagskreppa hefur verið í landinu undanfarin ár. Verulega dró hins vegar úr mótmælunum eftir að átök mótmælenda og hers urðu mannskæð, en auk þess voru hundruð mótmælenda handteknir. Sögðust margir í kjölfarið ekki þora að mótmæla.

Undanfarnar vikur hefur hins vegar fjölgað á ný í hópi mótmælenda og hefur nýr leiðtogi stjórnarandstöðunnar Juan Guaidó hvatt fólk til að láta í sér heyra, en hann hefur m.a. boðað til mótmæla gegn stjórninni nú á miðvikudag.

Einn þjóðvarðliðanna sem hvöttu fólk til að mótmæla stjórn Maduros.
Einn þjóðvarðliðanna sem hvöttu fólk til að mótmæla stjórn Maduros. AFP
Juan Guaido, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, hefur hvatt almenning til að mótmæla …
Juan Guaido, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, hefur hvatt almenning til að mótmæla stjórn Maduros. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert