Kvikmyndagerðarmaðurinn Woody Allen hefur höfðað skaðabótamál gegn Amazon fyrir samningsbrot. Fer Allen fram á að fá greiddar 68 milljónir Bandaríkjadala, sem jafngildir 8,2 milljörðum króna. Ástæðan er að sögn Allen ákvörðun Amazon að hafa hætt við sýningar á kvikmyndinni A Rainy Day in New York í streymisþjónustu sinni vegna „tilhæfulausra“ ásakana á hendur Allen um að hann hafi beitt dóttur sína kynferðislegu ofbeldi.
Í lögsókn Allens segir að Amazon hafi reynt að binda endi á samkomulagið í júní og síðan neitað að greiða honum 9 milljónir dala í fjármögnunarkostnað við myndina. Þetta kemur fram í lögsókn sem lögmenn hans hjá Quinn Emanuel Urquhart & Sullivan lögmannsstofunni hafa lagt fram fyrir alríkisdómstól í New York.
Myndin er ein nokkurra sem Allen ætlaði að gera samkvæmt samkomulaginu sem var gert eftir að Allen framleiddi Crisis in Six Scenes-þættina fyrir Amazon.
Allen, sem er 83 ára gamall, hefur verið sakaður um að hafa beitt dóttur sína Dylan Farrow kynferðisofbeldi þegar hún var sjö ára gömul. Fallið var frá ákæru á sínum tíma en ásakanir á hendur honum voru fyrst lagaðar fram af fyrrverandi eiginkonu Miu Farrow.
Dylan Farrow sagði síðan frá ofbeldinu sem hún varð fyrir af hendi föður síns í bréfi sem birt var á vef New York Times árið 2014.
Bréfið hefur hún með spurningu sem hún beinir til lesandans: „Hver er uppáhalds Woody Allen-myndin þín?“. Þá segir hún að lesandinn þurfa fyrst að heyra það sem í bréfinu stendur áður en hann gerir upp hug sinn.
Í bréfinu segir hún ítarlega frá atviki sem átti sér stað á háalofti heimilis hennar þegar hún var sjö ára gömul. „Hann sagði mér að leggjast á magann og leika með rafmagnslest sem bróðir minn átti. Síðan misnotaði hann mig. Á meðan hann gerði það hvíslaði hann að mér að ég væri góð stelpa, þetta væri okkar leyndarmál og lofaði að fara með mig til Parísar og gera mig að stjörnu í kvikmyndum hans.“
Þá segir hún að svo lengi sem hún muni eftir sér hafi faðir hennar gert henni hluti sem hún hafi ekki viljað, en til þess að komast undan honum hafi hún gjarnan falið sig undir rúmi eða læst sig inni á baðherbergi.
Farrow segist ekki hafa gert sér grein fyrir afleiðingum þess að segja móður sinni frá misnotkuninni, en trúverðugleiki hennar var víða dreginn í efa.
Í lokin talar hún um að Allen sé lifandi sönnun þess að samfélagið bregðist fórnarlömbum kynferðislegs ofbeldis.
Allen ættleiddi Dylan Farrow þegar hann var kvæntur móður hennar, leikkonunni Miu Farrow. Þau skildu árið 1992 þegar Allen tók upp við ættleidda dóttur leikkonunnar, Soon-Yi Previn. Í forræðisdeilu Allen og Miu Farrow taldi dómari að ófullnægjandi sannanir vera fyrir misnotkuninni. Allen hefur ávallt vísað ásökununum á bug.
Í júní í fyrra sagðist Allen styðja #MeToo-hreyfinguna og að hann ætti að vera þeirra fyrirmynd.
„Ég hef unnið við kvikmyndir í 50 ár og unnið með hundruðum leikkvenna. Engin þeirra hefur nokkurn tíma sakað mig um óviðurkvæmilega hegðun,“ sagði hann í viðtali við argentínsku sjónvarpsstöðina Canal 13. Sagðist hann aðeins einu sinni hafa verið borinn þungum sökum af konu sem hann var í forræðisdeilu við.
Undanfarna mánuði hefur hópur leikara sem hefur unnið með Allen fjarlægst hann en ekki allir. Til að mynda Javier Bardem og Alec Baldwin telja að aldrei hafi komið fram neitt sem hægt var að byggja á til að ákæra hann.