Hertoginn verður ekki saksóttur

Hertoginn er 97 ára gamall og slapp við meiðsli þrátt …
Hertoginn er 97 ára gamall og slapp við meiðsli þrátt fyrir að hafa velt bifreið sinni í umrætt skipti. AFP

Filippus prins verður ekki sóttur til saka vegna bílslyss sem hann varð valdur að skammt frá Sandringham í Norfolk í janúar.

BBC greinir frá því að konunglegi saksóknarinn telji ekki að lögsókn á hendur hertoganum af Edinborg heyri undir almannahagsmuni, en Filippus skilaði ökuskírteini sínu og baðst afsökunar í kjölfar slyssins.

Hertoginn er 97 ára gamall og slapp við meiðsli þrátt fyrir að hafa velt bifreið sinni í umrætt skipti. Tvær konur og barn voru í bifreiðinni sem hann ók á og handarbrotnaði önnur kvennanna í slysinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert