Karl og Kamilla halda til Kúbu

Kamilla og Karl skella sér til Kúbu í næsta mánuði.
Kamilla og Karl skella sér til Kúbu í næsta mánuði. AFP

Karl Bretaprins og Kamilla hertogaynja, eiginkona hans, halda til Kúbu í næsta mánuði en enginn úr bresku konungsfjölskyldunni hefur áður sótt landið heim.

Greint var frá þessu í tilkynningu nú undir kvöld.

Þar kemur fram að þau muni dvelja fjóra daga í Kúbu. Auk þess ætla þau að ferðast til annarra ríkja í Karíbahafi í ferðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert