Lögðu hald á horn að verðmæti 119 milljóna

Nashyrningshornin sem tollverðir í Hong Kong lögðu hald á.
Nashyrningshornin sem tollverðir í Hong Kong lögðu hald á. AFP

Flugvallaryfirvöld í Hong Kong hafa handtekið tvo menn en þeir reyndu að smygla nashyrningshornum að verðmæti einni milljón bandaríkjadala, jafnvirði um 119 milljóna króna, í gegnum landið til Víetnam.

Tollverðir lögðu hald á 24 afsöguð nashyrningshorn en þau vógu samtals 40 kíló. Fram kemur í frétt BBC að þetta sé mesti fjöldi nashyrningshorna sem reynt hefur verið að smygla í gegnum Hong Kong.

Mennirnir voru á leið til Ho Chi Minh í Víetnam frá Jóhannesarborg í Suður-Afríku með viðkomu í Hong kong.

Nashyrningshorn eru eftirsótt í Kína og Víetnam þar sem þau þykja hafa lækningamátt. Eftirspurn þaðan ýtir undir veiðiþjófnað í Afríku, sérstaklega í Suður-Afríku en þar má finna um 80% af villtum nashyrningum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert