Heilbrigðisráðherra Þýskalands ætlar sér að banna starfsemi er lýtur að því að færa kynhneigðir fólks til „betri vegar.“ Hann vill festa í lög reglur um að slíka starfsemi megi ekki kynna sem betrunarmeðferð.
„Samkynhneigð er ekki sjúkdómur og því ekki meðferðarhæf sem slíkur,“ sagði Jens Spahn, heilbrigðisráðherra Þjóðverja í viðtali við Die Tageszeitung. Hann vill með löggjöfinni gera útaf við svonefndar afhommanir, eins og þær hafa stundum verið nefndar uppi á Íslandi, til þess að vernda þá sem þurfa að hlíta svona meðferð.
Spahn, sem er heilbrigðisráðherra sem fulltrúi hægrivængs Kristilegra demókrata (CDU), er sjálfur samkynhneigður. „Ég trúi ekki á svona meðferðir ekki síst í ljósi minnar eigin kynhneigðar. Ég segi alltaf að Guð hlýtur að hafa eitthvað í huga,“ segir Spahn og á sennilega við að fyrir allir séu jafnir fyrir Guði.
Það er helst meðal trúarsöfnuða sem svona meðferðir tíðkast og þarf í því samhengi ekki lengra að leita en í íslenska söfnuði sem buðu upp á eitthvað þessu líkt hér á árum áður, eins og Betel og Krossinn. Að vísu hefur ekki borið á slíku á síðari árum.
Frumvarp Spahn er á frumstigi og hann kveðst ætla að setja þetta í ferli með því að ræða þetta við dómsmálaráðherrann. Hann vonast til þess að framkvæmdin skýrist með sumrinu.