Bandaríski söngvarinn R. Kelly hefur lýst sig saklausan af ákærum um kynferðisbrot gegn fjórum konum.
Kelly er ákærður í tíu liðum fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn konunum. Þrjár þeirra voru á aldrinum 13 til 17 ára þegar meint brot voru framin.
Nokkrir dagar eru liðnir síðan söngvarinn gaf sig fram við lögregluna. Hann var klæddur appelsínugulum galla í dómsalnum þegar lögmaður hans las upp yfirlýsingu hans um sakleysið.
BREAKING: R. Kelly pleads not guilty to charges with multiple criminal counts of alleged sexual abuse of several underage victims during court arraignment Monday. pic.twitter.com/Hj9DFBDkBd
— MSNBC (@MSNBC) February 25, 2019