Hryðjuverkamaðurinn kom til Íslands

Tarrant var leiddur fyrir dómara í gærmorgun.
Tarrant var leiddur fyrir dómara í gærmorgun. AFP

Hryðjuverkamaðurinn Brenton Tarrant, sem ákærður hefur verið fyrir morð eftir voðaverkin í Christchurch í Nýja-Sjáland þar sem 50 manns voru myrtir, kom til Íslands fyrir tveimur árum.

Frá þessu er greint í Washington Post.

Síðustu ár ferðaðist Tarrant út um allan heim en meðal áfangastaða hans voru Balkanlönd, Pakistan, Tyrkland, Norður-Kórea og lönd í vesturhluta Evrópu.

Tarrant kveðst hafa sótt innblástur til norska hryðjuverkamannsins Anders Breivik en fram kemur í yfirlýsingu Tarrants vegna hryðjuverkanna að ferðalögin síðustu ár hafi verið mjög jákvæð reynsla.

Viðhorf hans í garð innflytjenda hafi orðið verra þegar hann fylgdist með frönsku þingkosningunum árið 2017. Eins og áður hefur komið fram varð hann skelfingu lostinn vegna hryðjuverkaárásar í Stokkhólmi fyrir tveimur árum og sagðist vilja hefna ellefu ára stúlku sem lést í þeirri árás.

Auk þess minnist Tarrant á ferðalög til Íslands, Póllands, Nýja-Sjálands, Argentínu, Úkraínu og Búlgaríu í yfirlýsingu sinni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert