Stukku í sjóinn og biðu eftir björgun

Hér má sjá skemmtiferðaskipið Viking Sky sem einnig lenti í …
Hér má sjá skemmtiferðaskipið Viking Sky sem einnig lenti í vandræðum við vesturströnd Noregs í dag, skammt frá Raumsdal. AFP

Búið er að bjarga níu skipverjum á norsku flutningaskipi sem missti afl í vonsku veðri við Hustadvika fyrr í dag. Mennirnir urðu að stökkva í sjóinn svo það væri hægt að bjarga þeim, en tvær björgunarþyrlur náðu að hífa mennina um borð.

Að sögn norsku strandgæslunnar voru mennir blautir og kaldir en ómeiddir. Flogið var með mennina í land ásamt farþegum skemmtiferðaskips sem einnig lenti í vanda í stórsjó fyrr í dag við Noregsstrendur. 

Fram kemur í norskum fjölmiðlum að aðstæður hafi verið með þeim hætti að það hafi verið öruggara fyrir mennina að stökkva í sjóinn og bíða eftir björgun í stað þess að vera áfram um borð í skipinu. Slík var ölduhæðin og hamagangurinn. 

Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá aðstæður á vettvangi þar sem skemmtiferðaskipið, sem einnig lenti í vanda, var statt. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert