Hálfsjálfvirk skotvopn bönnuð með öllu

Árásarmaðurinn sem réðst inn í tvær moskur hefur verið ákærður …
Árásarmaðurinn sem réðst inn í tvær moskur hefur verið ákærður fyrir 50 morð og 39 morðtilraunir. AFP

Nýsjálenska þingið hefur samþykkt, með öllum atkvæðum nema einu, að banna allar gerðir hálfsjálfvirkra skotvopna. Lagabreytingin kemur til vegna skotárása í borginni Christchurch sem skildu 50 manns eftir í valnum.

119 þingmenn kusu með lagabreytingunni eftir lokaumræður á þinginu, en einn var á móti. Búist er við því að breytingin taki gildi á allra næstu dögum, eða um leið og hún hefur hlotið konunglegt samþykki landsstjóra Nýja-Sjálands.

Árásarmaðurinn sem réðst inn í tvær moskur hefur verið ákærður fyrir 50 morð og 39 morðtilraunir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert