„Hættuleg kona“ fannst látin

Sol Pais fannst látin.
Sol Pais fannst látin. AFP

Átján ára kona fannst látin eftir umfangsmikla leit bandarísku alríkislögreglunnar að henni. Talið var að „trúverðug ógn“ stafaði af henni en hún var sögð haldin þráhyggju vegna skotárásarinnar í Columbine-menntaskólanum árið 1999.

Sol Pais ferðaðist frá Flórída til Colorado þar sem hún keypti haglabyssu og skotfæri, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Að sögn bandarískra fjölmiðla fannst lík hennar við Mount Evans, skammt frá Denver.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert