Facebook býr sig undir háa sekt

Fram kom í lok síðasta árs að Facebook hafi í …
Fram kom í lok síðasta árs að Facebook hafi í fleiri ár veitt stærstu tæknifyrirtækjum heims aðgang að viðkvæmum persónuupplýsingum notenda. AFP

Samfélagsmiðilinn Facebook hefur greint frá því að hann muni setja til hliðar þrjá milljarða bandaríkjadala til að hafa til taks vegna rannsóknar bandarískra yfirvalda á því hvernig samfélagsmiðilinn fer með persónuupplýsingar notenda.

Fram kemur í frétt AFP að fyrirtækið búi sig undir háa sekt en Neytendastofa Bandaríkjanna rannsakar málið. Talið er að sektin geti numið fimm milljörðum bandaríkjadala.

Enn fremur kemur fram í yfirlýsingu Facebook að notendum á samfélagsmiðlunum hafi fjölgað um 8% það sem af er ári og er þeir núna rétt rúmlega 2,3 milljarðar.

Skömmu fyrir jól kom fram að Facebook hafi í fleiri ár veitt stærstu tæknifyrirtækjum heims aðgang að viðkvæmum persónuupplýsingum notenda, þvert á það sem talsmenn fyrirtækisins hafa haldið fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert