Engin tengsl á milli sprengju og árásar

Lögreglan stendur vörð í borginni Christchurch.
Lögreglan stendur vörð í borginni Christchurch. AFP

Lögreglan á Nýja-Sjálandi segir að engin tengsl séu á milli sprengjunnar sem fannst í borginni Christchurch og skotárásar í bænahúsi í mars sem varð fimmtíu múslimum að bana.

Lagt var hald á sprengju og skot­færi í auðu hús­næði í Christchurch í gær. Svæðið í kring var rýmt og sprengj­an fjar­lægð. 33 ára karlmaður var handtekinn vegna málsins. 

„Við erum ekki að leita að öðrum vegna þessa atviks,“ sagði rannsóknarlögreglumaðurinn Corri Parnell í yfirlýsingu. „Það eru engin tengsl sem vitað er um á milli 33 ára karlmannsins og árásanna í Christchurch 15. mars.“

Maðurinn heitir Jay Michael Harding-Reriti og hefur verið kærður fyrir að hafa sprengiefni í fórum sínum. Hann verður í gæsluvarðhaldi til 6. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert