Hékk í Eiffelturninum í sex klukkutíma

Maðurinn klifraði upp í töluverða hæð, fyrir ofan annan útsýnispall …
Maðurinn klifraði upp í töluverða hæð, fyrir ofan annan útsýnispall turnsins. AFP

Maður sem klifraði upp í Eiffelturninn í París í dag hefur verið fjarlægður úr turninum af viðbragðsaðilum. Maðurinn kom sér fyrir fyrir ofan annan útsýnispall turnsins og sat þar sem fastast í um sex klukkustundir.

Turninn og svæðið umhverfis hann voru rýmd á meðan aðgerðir lögreglu og slökkviliðs stóðu yfir. Manninum hefur verið komið í hendur viðbragðsaðila, að sögn lögreglu, en ekki er vitað hvort honum hafi orðið meint af vistinni í turninum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert