Allsherjarverkfall hófst í morgun í Súdan sem fleiri þúsund manns taka þátt í. Mótmælendur krefjast þess að herforingjastjórnin sem tók við völdum í síðasta mánuð víki og borgaraleg stjórn haldi um stjórntaumana í landinu.
Fjölmargir farþegar sitja eftir strandaglópar meðal annars flugfarþegar í höfuðborginni Kartúm einnig liggur starfsemi rútubílamiðstöðva niðri.
„Mótmælin eru fyrsta skrefið. Ef kröfum okkar verður ekki mætt tekur við allsherjar borgaraleg óhlýðni,“ sagði Yousef Mohamed bankastarfsmaður sem var með háreysti ásamt samstarfsfélögum sínum fyrir utan starfstöð sína í Katrúm.
Mótmæli hafa staðið yfir í Súdan í um fimm mánuði. Í apríl urðu þau til þess að forseti landsins til þriggja áratuga, Omar al-Bashir, var hrakinn frá völdum og herforingjar tóku við stjórntaumunum.
Mótmælendur vilja frekari breytingar og krefjast þess að borgaraleg stjórn taki við stjórninni. Þeir benda á að herstjórn hafi verið í landinu og það hafi ekki gefist vel í Súdan. Áform eru um að mótmælin haldi áfram á morgun.
Í þessari frétt er farið nánar yfir kröfur mótmælenda.