Xi færir Pútín risapöndur að gjöf

Önnur pandanna sem hefur fengið nýtt heimili í dýragarðinum í …
Önnur pandanna sem hefur fengið nýtt heimili í dýragarðinum í Moskvu. AFP

Forseti Kína, Xi Jinping, hefur lýst Vladimír Pútín Rússlandsforseta sem sínum besta vini í heimsókn sinni í Rússlandi. Þar ræða forsetarnir meðal annars pöndur, pólitík og viðskipti.

Kína og Rússland eiga það sameiginlegt að vaxandi spenna ríkir á milli þeirra og vestrænna ríkja og sjá leiðtogarnir sér leik á borði með því að efla tengsl landanna tveggja enn frekar. Xi færði þannig sönnur á vináttu leiðtoganna með veglegri gjöf: tvær risapöndur.

Vel fer á með forsetunum tveimur í opinberri heimsókn Xi …
Vel fer á með forsetunum tveimur í opinberri heimsókn Xi í Rússlandi. AFP

Xi afhjúpaði gjöfina við hátíðlega athöfn í dýragarðinum í Moskvu að Pútín og fleiri embættismönnum viðstöddum. Af myndskeiði af athöfninni er ekki annað að sjá en að Pútín líki gjöfin prýðilega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert